Það er fátt leiðinlegra en að standa upp og átta sig á því að klósettpappírinn er búinn. Með Rúllupp áskrift færðu sjálfbæran, hágæða pappír sendan heim með reglulegu millibili. Þú velur hvað hentar þér, við sjáum um afganginn. Þægilegt, sjálfvirkt og algjörlega áhyggjulaust.
Við pössum að pappírinn sé alltaf til, áður en þú tekur eftir því að hann vantar.
Veldu hversu oft þú vilt fá sendingu og við sjáum um rest. Færri búðarferðir, meiri þægindi.
Endurunninn, plastlaus, engin aukaefni og án trjáfellinga. Þú skeinir með stíl og samvisku.
Rúllupp pappírinn er jafn sterkur og hann er mjúkur. Þægindi og gæði í hverri rúllu.
Allt sem þú þarft að vita áður en þú pantar.
Með áskrift frá Rúllupp færðu mjúkan, umhverfisvænan pappír sendan reglulega heim, án þess að þurfa að hugsa um það. Þú pantar einu sinni og rúllar svo áfram áhyggjulaus.
Við bjóðum upp á tvær umhverfisvænar tegundir: 100% bambus og 100% endurunninn klósettpappír. Báðar tegundirnar eru mjúkar, sterkar og vistvænar.
Algjörlega. Við notum ekkert plast og allar umbúðir eru endurvinnanlegar.
Já! Allur pappír frá Rúllupp er 3 laga og hannaður til að vera bæði mjúkur og sterkur. Þetta er pappír sem þú getur treyst á, dag eftir dag
Þú velur tegund pappírs og hversu oft þú vilt fá hann sendan. Við sendum hann beint heim að dyrum.